komin aftur heim
Síðan á laugardaginn þá fórum við bara í Enniskot til Heddýar og við vorum hjá henni um nóttina og síðan keyrðum við bara heim í dag ég og Andri.
Síðan er bara skólinn á morgun.. vííí :S
seeya
5 athugasemdir
Ég er að spá í að láta reyna á að blogga hérna á þessu svæði.
þá er skólinn byrjaður og allir glaðir nema kannski busarnir. En í dag þá fengu þeir að kynnast því hvernig er að vera að byrja í menntaskóla. Þau þurftu meðal annars að sitja ofaní gryfju jarmandi eða liggjandi ofaná hvert öðru. Mér finnst svo gaman að horfa á þetta því að aðeins fyrir einu ári var þetta ég og minn árgangur. En þetta er bara gaman, allavegana þá fannst mér það og öllum sem að ég þekki þarna.
En við þurfum víst núna einnig að sækja alla tímana sem voru settir á stundatöfluna okkar en það er ágætt, væri skólinn skemmtilegri án þeirra ?, ég veit það ekki. Við Agnes vorum að ræða um þetta um daginn, komumst reyndar aldrei að niðurstöðu ;)
En þá erum við allar stelpurnar komnar heim á firðina og það er bara rosa gaman að geta verið með stelpunum aftur, reyndar er það allveg frábært. Svo núna á víst busaballið að vera á föstudaginn, en nýji skólastjórinn er búin að setja reglur að ballið verði frá 11 - 2, og að enginn komist inn eftir klukkan 12
, jamm sjáum til hverjir mæta á þetta ball. Ég fer allavegana ekki, Ég og Andri ætlum frekar að fara á busaballið í Varmahlíð þar sem að enginn þekkir reglur ;), Þar verður Kung fu að spila en Húsið á sléttunni hér, ég er ekkert að gera lítið úr einum né neinum.
Jamm núna veit ég ekkert hvað ég á meira að bulla um hérna svo heyrumst.
-Elsa-